Tequila Club

Tequila Club

23.07.2009 13:38:40 / amma

Tvær farnar út, ein kemur heim :*

Sælar yndislegu skvísurnar mína,

Eftir miklar pælingar á stutum tíma hef ég ákveðið að flytja til Íslands núna í lok sumars og byrja í sálfræðinni á haust í HÍ. Ég get ekki beðið eftir að hitta ykkur allar og knúsa elskurnar mínar. ;)  Maður leyfir sér ekki að sakna ykkar fyrr en maður veit að maður er að fara hitta ykkur von bráðar, en á sama tíma eru tveir aðrir meðlimir búnir að yfirgefa okkur..
Lea flytur til Stokkhólms og tekur við sem svíinn okkar og Christa er farin með Ísak Trausta til Noregs/ Bergen.
Ég á sjálf eftir að sakna Gautaborgar helling og kem ábyggilega til með að fara einhverntíman aftur hingað út. Kem heim í næstu viku semsagt svo þessa dagana er ég bara á fullu að pakka, flytja og hugsa um hvað það verður gott að koma til ykkar aftur :*
Love frá stínu í sweden

 
                                                           Guggi kom í heimsókn í mars að heilsa upp á stínuna ;*

Hlakka til að sjá ykkur æðin mín!     



    

» 5 hafa sagt sína skoðun

30.06.2009 11:28:51 / Guggi Moss

Séð og Heyrt!!!

Heyrst hefur að:

  • Signý búi í tjaldi á fjallstindum Íslands
  • Rúna sé ein eftirsóttasta lögreglukonan um þessar mundir
  • Lea sé að fara til Sweden í haust
  • Lilja hlusti bara á ítalska tónlist
  • Jóhanna sé með sundmót inn í sér
  • Christa ætli að verða norsk fyrirsæta
  • Hildigunnur sé að stefna á hjúkkuna í haust
  • Signý sé frelsuð ( hætt að drekka)
  • Rúna sé að meika það í hagkaupsbæklingnum
  • Guðrún sé komin í fullorðna manna tölu og er að flytja að heiman
  • Kristín sé að nauðga sér í 3 vinnum í Sweden
  • Guðrún sé að fíla það að starfa sem hjúkrunarfræðingur með gamla fólkinu
  • Lilja þurfi túlk til að skilja íslenskuna
  • Jóhanna og Guðrún elska útsölumarkaði
  • Lea sé að fara að leigja út höllina sína
  • Kristín sé að fara að taka þátt í MISS sweden 2010
  • Signý sé bara mjög sæt svona snoðuð
  • Lilja eigi 365 sólgleraugu 
  • Hildigunnur langi að eiga 7 börn á 5 árum
  • Guðrún ætli að halda tryllt afmælis/innflutningspartý 5.sept ;)
  • Jóhanna sé með lítin tippaling í maganum??? eða hvað


KV. MOSS


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.04.2009 20:26:31 / lilja

Ciao

ciao belle;)
hvað segiði gott elskurnar?
héðan frá Ítalíu er allt gott að frétta. er að skemmta mér þvílíkt vel. Skólinn og nánast allir í kringum hann eru æði:) Ég er búin að læra alveg heilan helling og er við það að vera orðin ítali;)
ég er ekki bara orðin ótrúlega klár í ítölskunni, heldur er ég líka farin að elda sjúklega gott pasta og tiramisú (þó ég segi sjálf frá) og svo er ég líka farin að drekka vín.... með hádegismatnum, kvöldmatnum, hvenær sem er:) (má kannski fylgja með að vínið verður að vera blandað í sprite eða eitthvað þvíumlíkt til þess að ég drekki það) haha

ég er búin að ferðast heilan helling með skólanum. Er búin að fara þrisvar bæði til Rómar og Flórens. 1 sinni til Feneyja á carnevale, sem var algjör snilld! Svo er ég líka búin að fara á einhverja minni fræga staði.
Í næstu viku kemur systir mín að heimsækja mig og við ætlum í roadtrip um Ítalíu. verður algjör snilld:)

Síðasta fimmtudagskvöld lenti ég í misskemmtilegu atviki. Ég var eitthvað að fikta með rakvél og fékk blaðið á bólakaf í þumalputtann á mér. Það blæddi óstjórnlega mikið og mér var ráðlagt að fara upp á slysó ef ske kynni að það þyrfti að sauma. Ég hélt nú ekki, fannst það frekar mikill aumingjaskapur að fara upp á slysó út af einvherju smá. Eftir skóla á föstudaginn var svo ennþá að blæða og ég var send upp á slysó... og það þurfti að sauma! :$ hehe

ég veit ekki hvenær ég kem heim, mig langar ekkert að koma heim. Er að leita mér að vinnu hérna:) endilega láta mig vita ef þið vitið um einhverja vinnu á Ítalíu!

ég er með blogg: skilekki.blogspot.com
og svo á ég líka símanúmer (0039) 327 327 5738

"1-0 fyrir Ítalíu" ég, puttinn og fuglinn (sem er reyndar allt önnur saga) alltof snemma morguns, við Ponte Vecchio í Flórens í gær.

Sakna ykkar sætu mínar:*
Love love

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.03.2009 15:59:02 / Guggi Moss

TAKK FYRIR SÍÐAST ;)

Hæ elskurnar mínar

Langaði bara að skella inn smá hugmynd sem hefur verið að reika um hópinn.. Það verður nú að viðurkennast að seinast fórum við saman í bústað árið 2006 hahaha og er því klárlega komin tími að endurtaka þann leik...

Hvenær hentar ykkur því ég þarf að panta með svolitlum fyrirvara????

bústaðurinn kostar 15500 heila helgi og planið er að vera bara stelpurnar á föstudegi og á laugardegi mega koma ástmenn og börn og barnabörn

Endilega tjáið ykkur pjásur





» 14 hafa sagt sína skoðun

12.02.2009 14:39:53 / hildigunnur

7.mars :)

Hæ hæ dúllurnar mínar.. ég vil endilega að þið takið frá laugardaginn 7.mars :D

Því þá munum við skíra litla prinsinn okkar :)

Þið munum síðan fá svaka flott boðskort bráðum með öllum upplýsingum. :D

kv. Hildigunnur, Doddi og Jónas Thor


» 12 hafa sagt sína skoðun

03.02.2009 18:26:35 / amma

Beyonce tónleikar í Gautaborg?

Beyonce heldur tónleika í Skandinavium mánudaginn 11.maí 2009, kl 19.30 ;) Skella okkar?





» 7 hafa sagt sína skoðun

28.01.2009 11:35:09 / amma

Jónas Thor fæddur!

Vá! Í gærkvöldi (27.jan) kl.21.57 fæddi yndislega vinkona okkar Hildigunnur 19 merku strák, 4735 gr. og 53cm! Hann lét bíða eins mögulega lengi eftir sér og hann gat og vildi bara kúra í mallanum á mömmu. Doddi var duglegur að koma með nýjustu fréttir á facebook svo við skvísurnar og fleiri gátum fylgst með, takk fyrir það. ;) Jónas Thor..

Hildigunnur og Doddi, innilega til hamingju með soninn. Hlýjar kveðjur frá Tequilaclub


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.01.2009 16:00:34 / signý

ÆDOL kvöld

American Idol byrjar í kvöld klukkan 20:10.
Planið er að hittast hjá Jóhönnu í Dúfnahólum 6 og horfa á þennan skemmtilega þátt saman.
Auðvitað er engin skyldumæting en þetta er krúttleg leið til að hittast alltaf reglulega og fara aðeins yfir slúðrið. Mæli með að allar sem sjá sér fært að mæta komi með eitthvað smá munch með sér.
Svo er pæling að einhver önnur hósti þetta næst og svo koll af kolli, eina skilyrðið er að vera áskrifandi af Stöð 2 auðvitað :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2009 15:40:22 / amma

stínan farin út ;*

hæ elskurnar mínar
Vildi fyrst og fremst þakka fyrir mig og láta ykkur vita að ég er öll heil á húfi og komin til sverige. ;) Þetta var æði að geta tekið svona langt frí og það leið ekki dagur þar sem ég hitti ekki allaveganna einn meðlim af okkur tequilaclub. Hlakka til að fá myndirnar sem Egill snillingur tók af okkur. Ég næaði meir að segja afmæli Rúnu á meðan eg var heima og endaði seinasta kvöldið með að spila fyrir ömmu gömlu sem hérlt hátíðlega upp á 70ára afmæli sitt í iðnó núna á fimmtudaginn.
Nú er bara allt komið á fullt og ég sit hérna með Söru skvísu og erum að setja lokahönd á 10bls. ritgerð sem skilast svo á mánudaginn. Á miðvikudaginn byrjar svo sænskan. Hafið það gott og veriði duglegar að taka myndir og senda mér slúður og fyrst og fremst vera í bandi.
Elska ykkurog á eftir að sakna ykkur!
kv.Stína


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2009 23:22:58 / lea

Myndataka

Var pæling að taka myndir áður en Stínan fer út á ný?
Svar óskast...


Kv. Lea-an!


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2009 16:54:33 / amma

3.jan- búningapartý vegna komu Kristínar Gunnars

Hææææææ gellur
Herru mér heyrist á öllum að þeir séu uppgefnir eftir allt þetta ástand, jólin, jólaboð og áramótin svo 3.janúars partyinu verður frestað þangað til um næstu helgi. Hvernig leggst það í ykkur party ljónin mín?

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.12.2008 00:30:12 / lea

Laugardagur

Sælar

Eftirvæntinginn er gríðarleg og við vonumst til að toppa frábært kvöld frá síðan í fyrra ;)

Mæting í Álfheimana um 18:00, og svo út að borða nokkrum tímum síðar!

Hlakka til að sjá ykkur elskurnar 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 13:44:26 / amma

Gleðileg Jól!

Elsku Tequilaclub skvísur. Hafið það æðislega gott yfir hátíðarnar! Gleðileg jól til allra og hlakka til að sjá ykkur þann 27.des :haha:
kv. Stína

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.12.2008 14:40:26 / Guggi Moss

SPILAKVÖLD...

Næstkomandi föstudag eru allir þeir meðlimir tequilaclub sem sitja á skólabekk búnir í prófum og er því tilefni til að fagna því með spilakvöldi og öli ;)

Fylgihlutur: makinn ykkar.. (ekki skylda)
Mæting: kl. 20:00
Fatnaður: Jólalegur
Staðsetning: Bollagata 1



Kv. nefndin


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.12.2008 11:46:11 / lea

Flutningar í dag!!!!

Vildi bara deila því með ykkur að langþráður flutningur okkar hjóna fer fram í kvöld svo ef þið viljið kíkja í heimsókn þá eruði velkomnar!

Þið sem eruð á leiðinni í próf gangi ykkur vel ;)

Þið hinar takið almennilega á því í vinnunni!


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 26
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 253 dögum
Fjölskyldan Lehmann flytur til Bergen
Heimsóknir
Í dag:  30  Alls: 114719
Klukkan